,,Altarissakramentið er líkami og blóð Jesú Krists,’’ segir kanslari kaþólsku kirkjunnar. Þáttastjórnandi er engu nær. Kirkjunnar fólk segir altarissakramentið aðal sakramentið í kaþólskri trú þar sem sókn sameinast Jesú Kristi. Þetta er bæði mikið kraftaverk og mikil ráðgáta, segir á vef kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Leitast er eftir að skilja fyrirbærið til hlítar í þætti dagsins. Vangaveltur um notkun og magn brauðs og víns koma við sögu en kaþólska kirkjan verslar ekki vín sitt í áfengisverslunum hér á landi eins og við flest. Einnig koma við sögu dæmisögur úr Biblíunni, guðslíkamahús, fermingarbörn í Hafnarfirði og ýmislegt fleira. Ferðalagið er drifið áfram af sögu Carlos Acutis, nýslegins dýrlings sem gjarnan er kallaður verndari internetsins enda fyrsti þúsaldardýrlingurinn sem þekktur er fyrir forritun á gagnagrunni um kraftaverk tengd altarissakramentinu. Við heimsækjum systur Pentecostés, nunnu í St. Jósefskirkju. Hún er nýkomin heim úr pílagrímsferð til Ítalíu með íslenskum unglingum. Þangað fóru þeir meðal annars til að vitja helgs dóms Acutis.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fler avsnitt av Meining
Visa alla avsnitt av MeiningMeining med RÚV Hlaðvörp finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.
