Sveriges mest populära poddar
Meining
Meining

Hryggsúlan I.

41 min•22 juni 2026

Om avsnittet

Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólks sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


Í fyrsta þætti skoðum við líffærafræði og þróunarsögu hryggsúlunnar. Hvernig fór maðurinn að því að reisa sig upp? Rætt er við Þorvald Ingvarsson bæklunarskurðlækni, Sigurjón Jóhannsson skipulagsfræðing, Þórhall Auð Helgason tölvunarfræðinema og Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, doktor í líffræði.


Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.




Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Meining med RÚV Hlaðvörp finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.