Sveriges mest populära poddar
Meining

Leikmenn

58 min30 mars 2026

„Að mínu áliti er kirkjan heilög. Þrátt fyrir að það séu til slæmir prestar, slæmir biskupar og það hafi verið mjög slæmir páfar í gegnum tíðina þá er kirkjan sjálf heilög. Ef hún væri það ekki, þá væri ég ekki í henni,’’ segir Jónas Sen, tónlistarmaður, gagnrýnandi og leikmaður í leikmannareglu Karmels í þætti dagsins. 


Í þættinum skoðum við leikmannareglunna nánar. Þegar talað er um leikmenn kaþólsku kirkjunar er átt við venjulegt kaþólskt fólk sem lifir sínu hefðbundna lífi utan kirkjunnar en kýs að fylgja andlegum reglum ákveðinna trúarreglna kirkjunnar. Hér á Íslandi finnum við leikmannareglu Karmels sem leikmenn eru vígðir í inn með formlegum hætti, fá brúnt herðaklæði í anda Karmelreglunnar og strengja ákveðin trúarleg heit. „Maður lofar að lifa í innri fátækt, ánetjast ekki auðum og völdum. Að reyna að vera í ákveðinni fjarlægð frá lífsgæðakapphlaupinu,“ segir Jónas um eitt af fornu loforðunum, en hann hefur verið í reglunni í rúman áratug. 


Rætt er við tvo leikmenn í reglunni, fyrirbæri eins og tíðabænir koma við sögu, einnig íslenskt-kaþólskt snjallsímaforrit, lesleiðbeiningar frá Róm og merkingarmyndun í kjölfar áfalla.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Meining med RÚV Hlaðvörp finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.