Sveriges mest populära poddar
Meining

Mölturiddarar

1 tim 1 min18 maj 2026

„Þetta er elsta riddararegla í heimi,“ segir Hreinn Líndal, einn íslensku Mölturiddaranna en þeir eru átta talsins, sjö karlmenn og ein kona. Þau tilheyra hinni kaþólsku Möltureglu, sem er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númeraplötur og  mynt. Möltureglan er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa í Sameinuðu þjóðunum. Það er gjarnan talað um hana sem hálffullvalda þjóðréttaraðila enda ríki án íbúa og eiginlegs landsvæðis. 


Í þættinum er fræðst um Mölturiddarana, sem og athyglisverðan feril Hreins. Hann er óperusöngvari, rak um sinn tískuhúsið H. Líndal og sá um að klæða Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu árin hennar í forsetaembætti í samstarfi við ítalska tískurisa eins og Valentino. 


Við sögu kemur Ronald Reagan, dýrlingurinn Padre Pio, mannúðaraðstoð, kraftaverkin í Lourdes, systur Trumps, Mary Higgins Clark og ýmislegt fleira.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Meining med RÚV Hlaðvörp finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.