Sveriges mest populära poddar
Meining

Skammtafræði I.

51 min25 maj 2026

„Það sem er miklu merkilegra, og þú ættir frekar að spyrja, er hvernig stendur á því að við getum yfirhöfuð skilið þetta? Það er ekkert fyrir fram gefið að heimurinn sé skiljanlegur,“ segir einn viðmælandinn, en flókinn heimur skammtafræðinnar er til skoðunar í næstu fjórum þáttum. 


„Skammtafræðin er afskaplega hagnýt. Margt í okkar daglega lífi er hægt að rekja beint til þessa aukna skilnings 20. aldar á eðli efnisins. Ég leyfi mér að fullyrða að það er engin önnur hugmyndafræði sem hefur skilað mannkyninu öðru eins,“ sagði Lárus Thorlacius, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, og nefndi því til stuðnings flatskjái, tæknina sem notuð er til að búa til farsíma og raunar flest sem lýtur að tölvum. Þrátt fyrir að skammtafræðin liggi að baki flestöllu í nútímaheiminum, og þótt nú sé liðin heil öld frá fæðingu hennar er hún enn sveipuð „undarlegum hjúpi leyndardóms og dulúðar,“’ eins og eðlisfræðingurinn Carlo Rovelli orðar það.


Skammtafræði er sú grein eðlisfræðinnar sem snýr að því smæsta. Ferðalag þessara þátta er því fullt af leyndardómsfullum hliðum sem storka gildandi hugmyndum okkar um heiminn. Í þessum þætti er m.a. spurt: Hvað er það allra smæsta í heiminum? Hversu smátt er það og hvernig lítur það út? „Þegar þú ert komin niður í svona stuttar lengdir þá er ekki nóg með að þú getir ekki gert greinarmun á ögn og bylgju heldur eru ögn og svarthol nokkurn veginn það sama,“ sagði Lárus Thorlacius


Rætt er við Unnar Arnalds, Birgi Ásgeirsson, Mars. M Proppé, Lárus Thorlacius og Viðar Guðmundsson.


Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.



Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Meining med RÚV Hlaðvörp finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.