Sveriges mest populära poddar
Meining
Meining

Skammtafræði IV.

51 min•15 juni 2026

Om avsnittet

Stærðfræðijöfnur og samspil trúar og vísinda er efniviður þáttarins. Hugleiðingar um fyrirbæri og tungumál stærðfræðinnar leiða okkur nefnilega með óvæntum hætti inn í tengsl trúar og vísinda, sem og jú andstæður og aðskilnað þessara tveggja heima. 


„Grundvallarspurningin er mögulega; Getum við afsannað ákveðnar trúarlegar kenningar með vísindalegri þekkingu? Þetta er eitthvað sem ég hef rannsakað sérstaklega í samhengi við heimsmyndarfræðina,“ segir danski sagnfræðingurinn Helge Kragh en hann er sérfróður um sögu trúarbragða og vísinda og hefur skrifað aragrúa af bókum um efnið. Rætt er við hann í þættinum sem og Birgi Ásgeirsson, Mars M. Proppé, Rögnvald Konráð Helgason og Kristian Joas. 


Við sögu kemur tungumál stærðfræðinnar, trú hinna ýmsu vísindamanna, heimsfastinn Λ, afstæðiskenning Einsteins, George Lemaitre og ýmislegt fleira


Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Meining med RÚV Hlaðvörp finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.