Sveriges mest populära poddar
Framvindan - Tæknihlaðvarp

Menntun á krossgötum - Gervigreind í skólanum, heilinn sem vöðvi og framtíð náms - Þáttur #004

44 min28 april 2026

Harvard prófessor lætur 180 nemendum prufa tvær aðferðir til að læra námsefnið. Fyrst fer hópurinn á fyrirlestur með kennara. Síðan fær hópurinn að læra heima með gervigreindarkennara. Eins próf í lokinn. Gervigreindin vann, og hópurinn lærði tvöfalt meira á færri mínútum.

Svo af hverju breytist ekkert í menntakerfinu?

Í þessum þætti förum við inn í þetta samtal með Birni Kristjánssyni kennara. Hann er hluti af opinberu tilraunaverkefni sem er að innleiða gervigreind í grunnskóla í Reykjavík akkúrat núna. Við heyrum hvað virkar í raun, hvað er erfitt og hvað kennararnir segja.

Við ræðum Harvard rannsóknina sem fæstir tóku mark á, MIT gögnin um 47% samdrátt í taugatengingum, stýrandi notkun gegn verkfæranotkun og Gunnur kynnir þrjá persónulega Claude útsendara og ráðgjafa sem hún notar daglega: heilsuráðgjafann, fjárhagsráðgjafann og verkefnastjórann.

Tæki og tól:

Frekara lesefni:

Þátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠ í Stokkhólmi

Fler avsnitt av Framvindan - Tæknihlaðvarp

Visa alla avsnitt av Framvindan - Tæknihlaðvarp

Framvindan - Tæknihlaðvarp med Gunnur og Gunnlaugur finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.