Sveriges mest populära poddar
Framvindan - Tæknihlaðvarp

Myndahöfundar og nýir miðlar: Sköpun, tækni og eignarhald + Hvað er raunverulegt lengur? - Þáttur #005

45 min5 maj 2026

Gervigreind getur í dag búið til myndir, teikningar og myndskeið á sekúndum, oft í stíl sem tekur listamenn ár að móta. Hraðinn er nýr. Umfangið er nýtt og þróunin hröð.

Svo af hverju er umræðan um höfundarétt, eignarhald og gildi listar enn svona óljós?

Við ræðum regluverkið og hvaða breytingar eru fram undan. Myndhöfundurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur í þáttinn og við spjöllum um hvernig þessi þróun hefur áhrif á hennar vinnu. Við skoðum hvað gerist þegar myndir, teikningar og málverk færast inn í heim algríma og hvernig það umbreytir hlutverki höfundarins.

Við förum yfir tækin og tólin sem eru að móta þessa þróun, hvað virkar í raun og hvar áskoranirnar liggja. Og við leikum okkur líka: sjálfsmyndabreytingar, dagatal búið til með AI, gamlar myndir gerðar lifandi og spurningin sem fylgir öllu þessu. Hvað er raunverulegt lengur?


Í þessum þætti

Við leikum okkur:

  • AI myndalíkön og sjálfsmyndabreytingar
  • Dagatal búið til með AI-generaðar myndir
  • Gamlar myndir gerðar lifandi
  • Hárgreiðslu- og útlitsbreytingar í rauntíma
  • Hvað er AI dysmorphia og af hverju er það að verða vandamál?

Við tölum um:

  • Deepfakes: hvernig þær virka og hvar þær eru að koma upp
  • AI Act: hvað Evrópulöggjöfin þýðir í framkvæmd fyrir myndir og myndbönd
  • Höfundaréttur og AI: má tækni læra af verkum listamanna án leyfis?
  • Commercial notkun: hvað gerist þegar auglýsingabransinn og stórir framleiðendur skipta yfir í AI myndir
  • Réttindi listamanna og hvað þeir geta gert í þessu umhverfi

Tæki og tól vikunnar

Whispr Flow — raddgreining sem breytir tali í fullkláraðar setningar í hvaða app sem er. wisprflow.ai

Replicate — keyra og fínstilla AI líkön í eigin verkefnum, án þess að nota kóða. replicate.com

Nano banana í Google Gemini myndir í spjallbottinum. Þú verður að prófa þetta sjálfur.

Higgsfield — Plattformur fyrir AI mynda- og myndbandsgerð. Búðu til myndir, breyttu þér í ólíkar persónur, og gerðu myndbönd með tæknibrellum, allt með einum smelli. higgsfield.ai

Structured — skipulagningsapp sem sameinar verkefnalista, dagatal og gamification á einni tímalínu. structured.app


Þátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠⁠ í Stokkhólmi

Fler avsnitt av Framvindan - Tæknihlaðvarp

Visa alla avsnitt av Framvindan - Tæknihlaðvarp

Framvindan - Tæknihlaðvarp med Gunnur og Gunnlaugur finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.