Sveriges mest populära poddar
Framvindan - Tæknihlaðvarp

Tilfinningar og spjallbottar + Er gervigreind betri þerapisti og vinur en alvöru manneskja? - Þáttur #006

45 min12 maj 2026

Spjallbotti getur í dag verið ráðgjafi, vinur, þerapisti og jafnvel rómantískur félagi. Hún svarar samstundis, er alltaf tiltæk og virðist hlusta án þess að dæma.

En hvað gerist þegar fólk fer að leita til véla eftir nánd, skilningi og tilfinningalegum stuðningi?

Og hvar liggja mörkin milli gagnlegs hjálpartækis og sambands sem byrjar að taka pláss frá raunverulegum tengslum?

Við ræðum hvernig fólk er farið að mynda raunveruleg tilfinningatengsl við gervigreind og hvers vegna þessi samskipti geta orðið bæði persónuleg og djúp. Við skoðum hvað það er sem gerir gervigreind svona sannfærandi í hlutverki ráðgjafa, hlustanda eða félaga.

Pétur Maack Þorsteinsson sálfræðingur kemur í þáttinn og við spjöllum um hvað gerist þegar samtöl við vélar byrja að uppfylla félagslegar og tilfinningalegar þarfir sem áður sóttust eingöngu í mannleg tengsl. Við skoðum hvernig þessi þróun getur haft áhrif á nánd, sjálfsmynd og væntingar okkar til samskipta.

Við förum yfir hvernig þessi tækni er þegar farin að hafa áhrif á sambönd, geðheilbrigði og daglegt líf, hvaða tækifæri og hættur felast í þessari þróun og hvers vegna umræðan um mörk, ábyrgð og mannleg tengsl verður sífellt mikilvægari.


Heimildir:


Þátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠⁠⁠ í Stokkhólmi

Fler avsnitt av Framvindan - Tæknihlaðvarp

Visa alla avsnitt av Framvindan - Tæknihlaðvarp

Framvindan - Tæknihlaðvarp med Gunnur og Gunnlaugur finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.