Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

56. Er verið að gera mig óþarfa? Gervigreind og mannauðsmál með Tékk-Inn

1 tim 3 min•29 oktober 2026

Om avsnittet

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og Bílaleigu Akureyrar

Hvað gerist á vinnustaðnum þegar gervigreindin fer að taka við verkefnum sem starfsfólkið hefur sinnt árum saman? Hvernig hjálpum við fólki að sjá tækifærin og gefum um leið áhyggjum þess pláss?

Í þessum samstarfsþætti Gervigreindarklúbbsins og Tékk-Inn hittir Stefán Atli þær Helgu og Örnu í spjall um gervigreind, mannauðsmál og framtíð vinnunnar. Við ræðum breytingastjórnun, sálrænt öryggi og hvers vegna mannauðsfólk þarf að vera með við borðið þegar fyrirtæki innleiða gervigreind.

Einnig förum við yfir hvernig tæknin getur stutt við fræðslu starfsfólks, létt á endurteknum verkefnum og gefið stjórnendum meiri tíma fyrir fólkið sitt. Hvað verður um störfin, hvaða hæfni verður mikilvægari og hvernig nýtum við tímann sem sparast?

Við deilum líka eigin mistökum við notkun gervigreindar — frá röngum tölum í kynningu til tölvupósts sem fór óvænt á hótel á Spáni. Hreinskilið og skemmtilegt samtal um tækifærin, óttann og mikilvægi gagnrýninnar hugsunar.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.