Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

58. Frá spjallmenni í persónulegan aðstoðarmann - Magnús Sigurbjörnsson

41 min•10 november 2026

Om avsnittet

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is.

Hvað ef gervigreindin gæti séð um verkefnin sem þú nennir aldrei að gera?

Í þessum þætti fæ ég til mín Magnús Sigurbjörnsson, tölvunarfræðing, ráðgjafa og annan stjórnanda hlaðvarpsins Korter í kosningar. Við ræðum hvernig gervigreind er að breyta vinnunni og hversdagslífinu, með dæmum úr okkar eigin reynslu.

Magnús segir meðal annars frá því hvernig hann lét gervigreind leita að lausum tíma í dekkjaskipti og hvernig erindreki tekur saman reikninga fyrir bókarann hans. En hversu mikið sjálfstæði viljum við gefa þessum stafrænu aðstoðarmönnum?

Við förum meðal annars yfir:

• Gervigreindarerindreka sem framkvæma verkefni og fylgjast með fyrir okkur.
• Hvernig fyrirtæki geta nýtt gervigreind til að styðja starfsfólk og einfalda endurtekin verkefni.
• Öryggi, aðgangsheimildir og mörkin á sjálfstæði erindreka.
• Sjálfvirka efnisgerð, talgervla og tækifæri í markaðsstarfi.
• Kortér í kosningar og framhaldið á hlaðvarpinu.

Hlustaðu á spjallið og fylgdu Gervigreindarklúbbnum til að missa ekki af næstu þáttum.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.