Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

57. PlayStation, GTA og framtíð gervigreindar – Óli Jóels úr Game Tíví

50 min•3 november 2026

Om avsnittet

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is. og Bílaleigu Akureyrar

Í þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Þór Jóelsson, Óla úr GameTíví, stofnanda Game Tíví og framkvæmdastjóra heildsölu Senu. Við rifjum upp upphaf Game Tíví og ræðum hvernig tölvuleikjaheimurinn hefur breyst, allt frá fyrstu PlayStation-tölvunni yfir í möguleika gervigreindar í leikjum framtíðarinnar.

Óli notar gervigreind í hugmyndavinnu, myndbandsvinnslu og daglegum verkefnum. Hann segir meðal annars frá því hvernig textun myndbanda sem áður tók klukkutíma tekur nú um fimm mínútur. En hvar liggja mörkin? Hann vill halda í sína eigin rödd og veltir fyrir sér hvort við glötum ákveðinni hæfni þegar við látum gervigreindina sjá um sífellt meira fyrir okkur.

Við ræðum líka framtíð PlayStation, GTA 6, tölvustýrðar leikjapersónur og hvers vegna mannleg sköpun skiptir okkur máli. Þaðan förum við yfir í stærri spurningar: Hvað verður um tilganginn ef við þurfum ekki lengur að vinna? Hver borgar fyrir gervigreindaruppbygginguna? Og hvað gerum við við allan tímann sem tæknin sparar okkur?

Fjörugt spjall um tölvuleiki, tæknina og mannlega þáttinn — með viðkomu á Gamescom og í uppáhaldsleikjum okkar.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.