Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

13. Gervigreind og hönnun 2 - Addi Nabblakusk

45 min•2 december 2025

Om avsnittet

Þátturinn er í boði HBHF.is,

Bílaleigu Akureyrar og

ChatGPTnamskeid.is.Í þessum þætti tekur Gervigreindarklúbburinn á móti

Adda Nabblakusk, einum litríkasta og frumlegasta hreyfihönnuði landsins. Addi hefur unnið að plötuumslögum og sjónrænum heimum fyrir listamenn á borð við Herra Hnetusmjör, Iceguys, Inga Bauer og Jón Jónsson, auk þess að skapa eigin karaktera, sögur og teikni- og hreyfimyndaheim sem bera skýrt Nabblakusk-fingrafar.Við ræðum tíu ára feril hans í hreyfihönnun, hvernig hann byggir upp hugmyndir og hvað drífur hann áfram í sköpun. Síðan köfum við ofan í gervigreindina: óöryggi, siðferðislegar spurningar, hvernig tæknin breytir skapandi geiranum og hvaða hlutverk hún á — eða á ekki — í listsköpun framtíðarinnar.Þessi þáttur er blanda af húmor, heiðarleika og sköpunarkrafti, þar sem Addi Nabblakusk talar opinskátt um listamannslífið á tímum gervigreindar. Þetta er ómissandi spjall fyrir alla sem lifa og hrærast í sköpunarheiminum.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.