Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

43. Helgi Hrafn – Er gervigreindin farin að hugsa fyrir okkur?

57 min•20 augusti 2026

Om avsnittet

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og Akademias.is

Er gervigreindin að hjálpa okkur að hugsa — eða er hún smám saman farin að hugsa fyrir okkur?

Helgi Hrafn Gunnarsson, forritari og fyrrverandi þingmaður Pírata, mætir í Gervigreindarklúbbinn og ræðir af hreinskilni um gervigreind, gagnrýna hugsun, persónuvernd og framtíð samfélagsins.

Í þættinum ræðum við meðal annars:

  • Af hverju Helgi telur okkur vera „hvergi nærri AGI“

  • Hvort gervigreind hefði orðið til án höfundarréttarbrota

  • Hvernig djúpfalsanir geta ógnað lýðræði og kosningum

  • Hvort hægt sé að hætta á Facebook án þess að detta út úr samfélaginu

  • Af hverju það er enginn svindlkóði fram hjá sjálfstæðri hugsun

Helgi varar við því að gervigreind sé mikill „people pleaser“ sem geti styrkt rangar hugmyndir og gefið okkur svörin sem við viljum heyra. Stærsta hættan sé því ef til vill ekki tæknin sjálf — heldur að við hættum að spyrja spurninga.

🎧 Hlustaðu á þáttinn og fylgdu Gervigreindarklúbbnum á Spotify til að missa ekki af næsta þætti.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.