Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

45. Vandamálið var ekki ég – heldur skólakerfið“ – Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir

51 min•27 augusti 2026

Om avsnittet

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.is.

Þátturinn er einnig í boði Akademias.is.

Hvað gerist þegar barni er talin trú um að skóli sé ekki fyrir það — en verður síðan afburðanemandi um leið og námsumhverfið breytist?

Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir er lesblind, með ADHD og einhverf. Hún fór óhefðbundna leið fram hjá framhaldsskólanum, lauk BA- og MS-gráðum við University of Florida og stofnaði menntatæknifyrirtækið HARTS. Hún segir að taugafjölbreytileikinn hafi ekki horfið — umhverfið hafi einfaldlega loksins gert henni kleift að nýta styrkleika sína.

Í þættinum ræðum við meðal annars:

  • Hvernig gervigreind getur orðið „great equalizer“ fyrir nemendur með ólíkar námsþarfir.

  • Hvernig nota má NotebookLM, myndræna framsetningu og æfingaspurningar til að læra betur.

  • Hvar mörkin liggja milli gagnlegs stuðnings og þess að gervigreindin verði „þroskaþjófur“.

  • Af hverju bann við ChatGPT leysir ekki vandann og hvers vegna kenna þurfi gagnrýna notkun tækninnar.

  • Hvernig HARTS og verkefnið Skóli fyrir öll vinna að auknu aðgengi, sterkari skólatengslum og jafnari námstækifærum.

Þarf stundum að laga barnið að skólakerfinu — eða skólakerfið að barninu?

Hlustaðu á þáttinn og fylgdu Gervigreindarklúbbnum á Spotify og samfélagsmiðlum.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.