Sveriges mest populära poddar
Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson

46 min•1 september 2026

Om avsnittet

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is.

Getur gervigreind orðið raunverulega fyndin — eða þarf hún fyrst að skilja sársauka, reynslu og mannlega bresti?

Gestur þáttarins er Hugleikur Dagsson, teiknari, rithöfundur og grínisti sem hefur í meira en tvo áratugi fengið Íslendinga til að hlæja, hneykslast og velta því fyrir sér hvort þeir hafi yfirhöfuð mátt hlæja.

Í þættinum ræðum við meðal annars:

  • Hvað gerðist þegar Hugleikur lét gervigreind semja brandara í sínum stíl

  • Hvort gervigreind geti skapað list eða sé aðeins verkfæri listamannsins

  • Óttann við að gervigreind taki störf og geri menninguna einsleitari

  • Fyrsta brandara Hugleiks og hvernig hugmyndirnar verða til

  • Hvers vegna hann tók sér pásu frá uppistandi

  • Vélmenni framtíðarinnar og drauminn um fyndið ellihjúkrunarvélmenni

ChatGPT mætir einnig óvænt í þáttinn, reynir að vera fyndið og fær hreinskilið svar frá Hugleiki.

Hlustaðu á Gervigreindarklúbbinn og fylgdu þættinum þar sem þú hlustar á hlaðvörp.

Gervigreindarklúbburinn med Stefán Atli finns tillgänglig på flera plattformar. Informationen på denna sida kommer från offentliga podd-flöden.